Þjónustuvefur Straums
Leiðbeiningar um helstu aðgerðir
Þjónustuvefur Straums
Á þjónustuvef Straums geturðu fylgst með greiðslum, skoðað færslur og framkvæmt helstu aðgerðir tengdar samningi þínum.
1. Helstu aðgerðir
• Skoða yfirlit yfir sölu og færslur
• Leita að einstökum færslum
• Endurgreiða færslur
• Skoða uppgjör
• Nálgast upplýsingar um samninga og búnað
Við mælum með að allir setji á tveggja þátta auðkenningu við innskráningu á þjónustuvef Straums. Sjá nánar hér hvernig á að virkja tveggja þátta auðkenningu.
Einfalt og þægilegt er að stilla beinan innlestur úr þjónustuvef beint í bókhaldskerfi. Hægt er að tengjast BC, DK, Tegra, Dynamix AX og Uniconta.
2. Aðgangur og innskráning
Til að nota þjónustuvef Straums þarftu að skrá þig inn með netfangi og lykilorði.
Hvernig á að skrá sig inn:
1. Farðu á þjónustuvef Straums: https://thjonustuvefur.straumur.is/
2. Sláðu inn netfang og lykilorð.
3. Veldu Innskráning.
Eftir innskráningu opnast mælaborð þjónustuvefsins þar sem þú sérð yfirlit yfir sölu, færslur og uppgjör.
Vantar aðgang?
Ef þú þarft aðgang að þjónustuvef Straums eða lendir í vandræðum með innskráningu geturðu haft samband við þjónustuver Straums á straumur@straumur.is, í netspjalli á straumur.is eða í síma 585 6600.
3. Mælaborðið
Á mælaborðinu færðu fljótlegt yfirlit yfir helstu tölur úr rekstrinum.
Þar geturðu séð:
• Sala dagsins - heildarsölu sem hefur farið í gegnum greiðslulausnir Straums þann dag.
• Heildarsala tímabils - sölu á völdu tímabili, til dæmis mánuði.
• Færslufjölda - hve margar greiðslur hafa verið framkvæmdar á tímabilinu.
• Skipting milli samninga - ef fyrirtækið er með fleiri en einn samning hjá Straumi birtist skipting sala milli þeirra.
• Ógreidd staða - yfirlit yfir upphæðir sem eiga eftir að greiðast út.
4. Valmynd
Í valmyndinni vinstra megin á síðunni finnur þú helstu aðgerðir þjónustuvefsins.
• Mælaborð - yfirlit yfir sölu, færslur og stöðu samninga.
• Uppgjör - yfirlit yfir uppgjör og greiðslur frá Straumi.
• Færslur - listi yfir allar greiðslufærslur þar sem hægt er að leita og skoða nánari upplýsingar.
• Skýrslur - mismunandi skýrslur sem hægt er að sækja.
• Búnaður - yfirlit yfir posa.
• Stillingar - aðgangur að stillingum og notendastjórnun.
5. Færslur
Undir Færslur finnur þú lista yfir allar greiðslur sem hafa farið í gegnum greiðslulausnir Straums.
Í listanum geturðu:
• Leitað að færslum
• Síað eftir dagsetningu eða upphæð
• Skoðað stöðu færslu
• Opnað færslu til að sjá nánari upplýsingar
Þegar þú smellir á færslu opnast yfirlit með upplýsingum eins og:
• Dagsetningu og tíma
• Greiðslumáta
• Upphæð
• Auðkenni færslu
• Tengdum uppgjörsupplýsingum
6. Endurgreiða færslu
Ef endurgreiða þarf færslu er það gert beint úr færsluyfirlitinu.
Til að endurgreiða færslu:
1. Finndu færsluna í listanum.
2. Opnaðu færsluna.
3. Veldu Endurgreiða.
4. Sláðu inn upphæð sem á að endurgreiða.
5. Staðfestu aðgerðina.
Hægt er að endurgreiða:
• Alla upphæð færslunnar
• Eða hluta hennar
• Ekki er hægt að endurgreiða hærri upphæð en upprunafærslan var
Endurgreiðslan fer aftur á sama kort og notað var við greiðslu.
7. Bókhaldstenging
Straumur tengist beint við bókhaldskerfi. Þegar tengingin er komin inn lesa gögnin sig sjálf. Posar senda uppgjör sjálfkrafa í lok dags.
Studd bókhaldskerfi:
• BC
• DK
• Tegra
• Dynamix AX
• Uniconta
Einfalt og þægilegt er að stilla beinan innlestur úr þjónustuvef beint í bókhaldskerfi. Hægt er að tengjast BC, DK, Tegra, Dynamix AX og Uniconta.
Hafðu samband við okkur á straumur@straumur.is til að setja upp tengingu.
8. Notendastjórnun
Hægt er að gefa starfsfólki aðgang til þess að framkvæma ákveðnar aðgerðir á þjónustuvefnum. Þú stýrir nákvæmlega hvað hvert og eitt þeirra sér og getur gert.
Við getum gefið réttindi:
- Niður á samning
- Niður á aðgerðir
- Hlutverk starfsmanns
- "user" eða "admin" aðgangur
- Aðgangur fyrir tæknilegan tengilið (e. integrater)
Notendur geta valið á milli félaga sem þeir hafa réttindi á, án þess að skrá sig aftur inn.
Til að bæta við nýjum notanda:
1. Farðu í Stillingar > Notendur á þjónustuvefnum.
2. Veldu "Bæta við notanda".
3. Sláðu inn netfang og veldu hlutverk (Admin / User / Integrator).
4. Veldu hvaða samninga notandinn á að hafa aðgang að.
5. Stilltu nákvæmar heimildir ef þörf krefur.
6. Staðfestu.
Engin þörf á að deila lykilorðum eða loka á aðgang eftir að starfsmaður hættir. Þú getur afvirkjað notanda hvenær sem er.
9. Panta posa
Auðvelt er að panta nýjan posa beint á þjónustuvefnum.
Til að panta posa:
1. Farðu í Útstöðvar á þjónustuvefnum.
2. Veldu "Nýr posi" efst í hægra horni.
3. Nýr gluggi birtist þar sem hægt er að skrá upplýsingar um posa:
• Posatýpu
• Samningsnúmer
• Afhendingastað og fleiri upplýsingar
Posadeild setur upp posa og hefur samband þegar það má sækja posa eða senda með Póstinum.
10. API lyklar
Hægt að stofna og breyta API lyklum á þjónustuvef undir Aðgangur > API lyklar.
Til að stofna nýjan lykil:
1. Smelltu á "Stofna nýjan lykil" efst í hægra horni.
2. Gefðu lyklinum nafn - nafnið birtist á yfirlitssíðu greiðslutengla.
3. Veldu ákveðin samningsnúmer eða hakað við "Allir samningar skráðir" - þá tengist API lykillinn við samninga stofnaða í framtíðinni.
4. Smelltu á "Stofna lykil".
Mikilvægt: Eftir að API lykill hefur verið stofnaður er aðeins hægt að afrita lykil í 24 klukkutíma. Af öryggisástæðum er ekki hægt að afrita hann af síðunni eftir þann tíma og þarf því að stofna nýjan.
Eftir að lykill hefur verið stofnaður er hægt að breyta og afvirka:
• Breyta: skipta um nafn, taka út og bæta við samningsnúmerum
• Afrita lykil: á forsíðu API lykla - smellir á táknið og þá afritast lykill
11. Sýndarhlekkir
Sýndarhlekkir gera þér kleift að senda viðskiptavinum hlekk á greiðslusíðu eða afpöntunarsíðu Straums.
Það eru tvær leiðir til að búa til Sýndarhlekki:
Gegnum Þjónustuvefinn
- Þá farið þið inn á “Veflausnir -> “Sýndarnúmer með tengli” og velið [Stofna sýndarnúmer með tengli]
- Svo eru upplýsingar fylltar inn. Það er hægt að gera þann Sýndartengil að margnota tengli sem hægt er að senda ótakmarkað á korthafana.
- Þegar korthafi hefur svo sett inn sýnar upplýsingar þá berast þessar upplýsingar bæði í Webhook og verða svo sýnilegar á þjónustuvefnum undir “Sýndarnúmer”. Þar er þá hægt að afrita sýndarnúmerið til þess að nota í öðrum kerfum.
Gegnum API/Kerfislega
- Þá talar kerfið ykkar við API/Greiðslugáttina okkar og stofnar Sýndarhlekk sjálfkrafa út frá upplýsingum frá ykkur
- Hér er hlekkur á skjölunina: Create Payment Link | Welcome to Straumur Docs
- Kerfið notast þá við týpuna “TokenizeByLink”
- Korthafi fær hlekk sendann og setur inn sýnar upplýsingar
- Kerfið fær svo Webhook frá okkur sem það les sjálfkrafa inn í BC
- Hér er hlekkur á skjölunina: Tokenization event | Welcome to Straumur Docs
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600