Straumur er íslenskt greiðslumiðlunarfyrirtæki og dótturfélag Kviku banka. Straumur sérhæfir sig í að bjóða fyrirtækjum og einstaklingum lausnir til að taka á móti greiðslum í posa og á netinu. Straumur er í samstarfi við evrópska fjártæknifyrirtækið Adyen.
Hvaða þjónustu býður Straumur upp á?
Straumur býður upp á posalausnir, greiðslusíður og greiðslugátt ásamt greiðslutenglum. Einnig eru í boði tengingar við vefverslunarkerfi, afgreiðslu- og bóhaldskerfi.
Hvaða greiðslumáta get ég boðið mínum viðskiptavinum?
Greiðslulausnir Straums styðja við helstu kortategundir svo sem Visa, Mastercard, Amex, Diners og JCB. Einnig geta viðskiptavinir greitt með Apple pay og Google pay í vefgreiðslulausnum Straums. Ef þú hefur áhuga á að bjóða upp á fleiri kortategundir þá er hægt að hafa samband við þjónustuteymi Straums á straumur@straumur.is
Ég hef áhuga á að koma í viðskipti við Straum, hvernig ber ég mig að?
Þú getur skráð þig inn með því að ýta á "Þjónustuvefur Straums" efst í hægra horni heimasíðunnar eða hér á thjonustuvefur.straumur.is
Á þjónustuvef Straums er hægt að nálgast helstu upplýsingar um reksturinn. Þar er meðal annars yfirsýn yfir færslur, uppgjör og greiðslur. Einnig býður þjónustuvefurinn upp á sjálfsafgreiðslu en þar er meðal annars hægt að panta posa, sækja API lykla og endurgreiða færslur. Sjá leiðbeiningar um helstu aðgerðir á þjónustuvefnum hér.
Hvernig hef ég samband ef ég á í vandræðum með posa/veflausn?
Hvort sem þig vantar aðstoð með posa eða veflausnir þá eru þjónustufulltrúar okkar ávallt tilbúin að aðstoða. Hægt er að hafa samband við þjónustufulltrúa í síma 585 6600 eða senda fyrirspurn á straumur@straumur.is
Hvar er skrifstofa og móttaka Straums?
Straumur er til húsa í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Móttakan er á 9undu hæð. Við tökum vel á móti þér.
Hvernig eru opnunartímar? Bjóðið þið uppá neyðarþjónustu utan opnunartíma?
Skrifstofa Straums er opin alla virka daga frá 9-16. Ef upp koma vandamál utan þjónustutíma er bakvakt starfrækt til 23 á kvöldin og frá 9-23 um helgar. Sjá nánar hvernig hægt er að hafa samband hér.
Hvert get ég leitað ef ég þarf aðstoð við greiðslutengingu?
Einnig getur þú leitað til þjónustuaðila þíns beint.
Hver eru helstu ávinningarnir fyrir mig sem söluaðila að nýta greiðslulausnir Straums í samstarfi við Adyen?
Öll keðjan á einum stað. Straumur og Adyen sjá um alla greiðslukeðjuna - engir þriðju aðilar, einn samningur, eitt verð og einn aðili sem svarar ef eitthvað kemur upp á.
Greiðslur sem detta ekki út. Uppitími síðustu 90 daga er 99,999%.
Fleiri samþykktar greiðslur. Adyen vinnur greiðslur fyrir fyrirtæki á borð við Spotify, Zara og Uber. Gagnamagnið gerir kerfinu kleift að greina betur á milli lögmætra viðskipta og svika – sem þýðir að færri eðlilegar greiðslur eru stöðvaðar og meira selst.
Nýjar greiðsluleiðir án fyrirhafnar. Apple Pay, Google Pay og aðrar leiðir bætast við án nýrrar samþættingarvinnu.
Get ég tengt Straum við vefverslunina mína?
Já, Straumur býður upp á lausnir og einfalda uppsetningu við helstu vefverslunarkerfi svo sem Shopify,Woocommerce og Magento. Sjá leiðbeiningar hvernig hægt er að tengjast lausnum fyrir greiðslusíðu hér.
Fyrir fyrirtæki sem vilja meiri sveigjanleika er einnig í boði að tengjast greiðslugátt Straums. Sjá tækniskjölun fyrir greiðslugátt Straums hér.
Hvað eru greiðslutenglar?
Greiðslutenglar eru einföld leið til að taka við greiðslum án þess að vera með posa eða hefðbundna vefverslun. Þú stofnar hlekk á þjónustuvef Straums, sendir hann til viðskiptavinar og viðskiptavinurinn lýkur greiðslu á öruggri greiðslusíðu Straums. Sjá leiðbeiningar um stofnun greiðslutengla hér.
Býður Straumur upp á lausnir fyrir áskriftir eða endurteknar greiðslur?
Já. Straumur býður lausn fyrir fyrirtæki sem innheimta áskriftir eða aðrar reglulegar greiðslur ásamt því að tengjast helstu bókunarvélum eins og Bókun, Godo, Journey og Repeat.is.
Straumur býður einnig upp á sýndarnúmer með tengli. Þá stofna viðskiptavinir greiðslutengil til að senda á viðskiptavini til að vista kortaupplýsingar fyrir áskrift eða endurteknar greiðslur.
Hvar finn ég tæknilegar leiðbeiningar?
Tæknilegar leiðbeiningar og skjölun eru aðgengilegar á skjölunarsvæði Straums fyrir greiðslusíðu, greiðslugátt, API-tengingar og ýmsar innleiðingar, þar á meðal vef- og applausnir.
Hvernig getum við aðstoðað?
Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16