
99,999% uppitími síðustu 90 daga
Þegar greiðslukerfi liggur niðri getur það haft bein áhrif á rekstur söluaðila. Viðskiptavinir geta ekki gengið frá kaupum, sala tapast og upplifunin verður verri. Þess vegna skiptir stöðugleiki greiðslulausna miklu máli.
Við hjá Straumi fylgjumst náið með uppitíma greiðslukerfisins okkar og síðustu 90 daga hefur hann verið 99,999%.
Það jafngildir um 78 sekúndna niðritíma í heild yfir allt tímabilið - eða rúmlega eina mínútu á heilum ársfjórðungi.
Öflugir innviðir að baki
Greiðslulausnir Straums byggja á innviðum Adyen, eins stærsta greiðslufyrirtækis Evrópu. Adyen vinnur með fjölmörgum af stærstu alþjóðlegu fyrirtækjum heims, meðal annars Spotify, Zara og Uber, og hefur byggt upp greiðsluinnviði sem eru hannaðir til að vinna úr miklu færslumagni með miklum stöðugleika.
Fyrir viðskiptavini Straums þýðir þetta að íslensk þjónusta og þekking er studd af öflugum alþjóðlegum greiðsluinnviðum.
Öryggi er hluti af grunninum
Stöðugleiki einn og sér nægir ekki. Greiðsluumhverfið þarf jafnframt að uppfylla strangar kröfur um öryggi og meðferð greiðsluupplýsinga.
Lausnir Straums og Adyen byggja á alþjóðlegum öryggisstöðlum og tækni á borð við PCI DSS, ISO 27001 og 3D Secure 2 (3DS2). Markmiðið er einfalt: að greiðslur séu bæði öruggar og aðgengilegar þegar viðskiptavinurinn vill ganga frá kaupum.
Greiðslulausnin á einfaldlega að virka.
Viltu vita meira um greiðslulausnir Straums? Sendu okkur línu á straumur@straumur.is eða hafðu samband í síma 585 6600.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600