Fréttir /

Prís tekur við greiðslum með Straumi

20.08.2024

Við hjá Straumi erum spennt að deila fréttum um fyrsta söluaðilann sem nýtir greiðslulausnir okkar í samstarfi við Adyen – Prís, ný og byltingarkennd matvöruverslun sem miðar að því að lækka verðlag á Íslandi

Prís hefur sett sér það markmið að vera ódýrasta matvöruverslun landsins og bæta hag heimila með því að bjóða lægsta mögulega verðið á mat- og dagvöru. Með því að endurskoða allar hliðar rekstrarins og einblína á að spara kostnað með nýstárlegri tækni og ferlum, er Prís að skapa nýja framtíð fyrir íslenskan markað.

Við erum einstaklega stolt af því að Prís, sem er að hrista upp í íslenskri verslunarmenningu, hafi valið að vinna með okkur hjá Straumi. Það sýnir traust á okkar greiðslulausnum, sem eru bæði öruggar og sveigjanlegar til að styðja við framfarir og nýsköpun í viðskiptum.

Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Prís og að styðja við þeirra vegferð að bæta hag íslenskra heimila.

Sjáumst í Prís!

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16