Fréttir /

Nýir Straums posar

11.09.2024

Við erum ánægð að tilkynna að fyrstu Straums posarnir með hugbúnaði frá Adyen eru nú komnir í umferð hjá völdum söluaðilum, og hefur reynslan verið framúrskarandi.

Posateymi Straums verður til staðar til að tryggja að uppsetning og notkun á nýju posunum gangi snuðrulaust fyrir sig. Teymið er skipað sérfræðingum með áralanga reynslu af umsýslu posa- og veflausna. Skrifstofa og móttaka Straums er opin alla virka daga frá kl. 9:00 - 16:00, en einnig er bakvakt starfrækt sem sinnir neyðarþjónustu utan opnunartíma á kvöldin og um helgar.

Hvað þarft þú að gera?

Ekkert. Þegar það kemur að því að skipta út posa munum við hafa samband með góðum fyrirvara til að undirbúa skiptin. Ef þú vilt fá nýjan posa strax, getur þú sent okkur póst á straumur@straumur.is og við skipuleggjum útskipti sem fyrst.

Með nýju posunum fylgir einnig ný verðskrá, sem við viljum kynna fyrir ykkur. Nýja verðskrá má sjá hér. Við hlökkum til að halda áfram að efla greiðsluþjónustu okkar með ykkur og tryggja að þið fáið þá þjónustu og tæknilausnir sem þið þurfið til að ná árangri.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16